Matarvísir

Matarvísir

Girnilegar uppskriftir úr öllum áttum og fréttir tengdar mat.

Fréttamynd

Eftirréttur Ólympíufaranna

Kokkalandsliðið er á leið til Þýskalands að taka þátt í Ólympíuleikum í matreiðslu. Þessi dýrðlegi desert verður hluti af framlagi þess. Uppskriftin er miðuð við 10 manns.

Menning
Fréttamynd

Matur sem börnin borða

Margir kannast við það að börnin þeirra borði lítið sem ekkert heima hjá sér en séu miklir mathákar í leikskólanum. Út frá þessu algenga vandamáli kviknaði hugmyndin," segir Ásta Vigdís Jónsdóttir, ritstjóri bókarinnar Krakkaeldhús sem nýverið kom út hjá útgáfunni Hemru. Í bókinni eru tíndar til uppskriftir frá leikskólum landsins

Menning
Fréttamynd

Túnfiskur spari og hversdags

Túnfiskur hefur ekki verið algengur réttur á borðum Íslendinga hingað til nema maukaður í majónessalötum. Túnfiskur er hins vegar annað og meira og auðvelt að búa til úr honum alls kyns eðalrétti.

Menning
Fréttamynd

Kokkalandsliðið eldar ólympíumat

Kokkalandsliðið okkar æfir sig nú fyrir ólympíuleika í matreiðslu. Humar, lax, lambahryggvöðvi og önnur eðalhráefni verða að veisluföngum sem dómnefndin á ugglaust eftir að falla fyrir. Liðið hélt sína fyrstu alvöruæfingu nýlega og tvær aðrar eru fyrirhugaðar áður en haldið verður til Erfurt í Þýskalandi en þar verður keppnin haldin í næsta mánuði.

Menning
Fréttamynd

Saltfiskur og suðræn stemmning

Spænskir matar- og víndagar standa yfir á veitingastaðnum SiggiHall á Óðinsvéum þar sem boðið er upp á spænskan matseðil ásamt spænskum vínum frá Rioja. Á matseðlinum er meðal annars að finna saltfiskbollur og pönnusteiktan saltfisk en Spánverjar hafa löngum verið þekktir fyrir dálæti sitt á saltfiski.

Menning
Fréttamynd

Vel beittir hnífar

Sigurjón Ívarsson segir að leynivopnið í hans eldhúsinu sé gott skurðarbretti, að ógleymdum vel brýndum hnífum. "Bitlausir hnífar eru gagnslausir og beinlínis hættulegir," segir hann. "Þar fyrir utan á ég mér annars konar leynivopn sem er gott skap, jákvæðni og ástríða. Að elda mat ástríðulaust endar bara með ósköpum."

Menning
Fréttamynd

Bragðast vel með kjöti

Reyniviðurinn skartar sínu fegursta með fagurrauð berin í klösum á greinunum. Úr berjunum má búa til hið fínasta hlaup sem fer vel til dæmis með steiktu kjöti. Það er bragðmeira og lítið eitt beiskara en rifsberjahlaup og ekki síður hollt.

Menning
Fréttamynd

Ekki sama laukur og laukur

"Áhugi á ræktun matjurta hefur aukist gríðarlega og ef til vill hefur það sitt að segja að mataræði okkar hefur breyst og hafa kryddjurtir og salöt aukist mikið í fæðunni," segir Auður Jónsdóttir, garðyrkjufræðingur og umsjónarmaður nytjajurtagarðs Grasagarðsins í Laugardal.

Menning
Fréttamynd

Íslenskir réttir öðlast nýtt líf

Þótt matreiðslubækurnar Cool Cuisine og Cool Dishes heiti framandi nöfnum innihalda þær bæði þjóðlegar og nútímalegri uppskriftir að rammíslenskum mat. Þar öðlast hefðbundnir réttir nýtt líf svo sem kjötsúpa, plokkfiskur, hangikjöt og steikt slátur og lýst er hvernig matreiða á lunda, hreindýr, lambakjöt, krækling og ferskan fisk svo nokkuð sé nefnt.

Menning
Fréttamynd

Á sveppaveiðum

"Uppáhaldssveppurinn minn vex ekki á Íslandi," segir Ágúst Pétursson, kennari, sveppaáhugamaður og matargúru að auki. "Sá sveppur heitir myrkill og er afskaplega sérkennilegur í laginu, svona eins og hann sé á röngunni, og bragðið er sterkt og sérstakt. Þessi sveppur vex í sendnum jarðvegi í frekar heitum löndum. En hann er sjaldgæfur og kílóið af honum þurrkuðum er á um 30.000 krónur. Flestir falla fyrir honum um leið og þeir bragða hann."

Menning
Fréttamynd

Sveppatínsla í Heiðmörk

Í dag verður farin sveppatínsluferð í Heiðmörk á vegum Skógræktarfélags Reykjavíkur. Leiðbeinandi í göngunni er Bjarni Diðrik Sigurðsson, skógarvistfræðingur hjá Rannsóknarstöðinni á Mógilsá.

Menning
Fréttamynd

Algjör matarfíkill

María Björk Sverrisdóttir er mikið fyrir góðan mat. "Ég er matarfíkill og matur er helsta nautnin í mínu lífi. Mér finnst rosagaman að fara út að borða og finnst þá gaman að borða öðruvís mat."

Menning
Fréttamynd

Skemmtilegt að borða Sushi

Sigríður Guðmarsdóttir prestur er nýkomin heim eftir fjögurra ára búsetu í Bandaríkjunum. Hún er ánægð með að vera komin heim en saknar þó eins. "Það sem mér finnst skemmtilegast að borða er sushi með soja, grænu wasabi og appelsínugulri engiferrót

Menning
Fréttamynd

Arabi í eldhúsinu

Halldóra Jónsdóttir orðabókaritstjóri, sækir matarlist sína og -lyst á framandi slóðir. "Ég er arabi í eldhúsinu og hef mikinn áhuga á norður-afrískum mat. Ég kynntist þessu fyrst þegar ég var á Interailferð í París og Högna frænka mín bauð okkur vinkonunum út að borða í arabískt kúskús"

Menning
Fréttamynd

Frosin ber þurfa styttri suðu

"Stikilsberin eru grjóthörð en ef maður frystir þau fyrir notkun þurfa þau styttri suðu og verða sætari," segir Þóranna Eiríksdóttir, húsfreyja í Árbænum í Reykjavík. Hún er ein af þessum myndarlegu sem kunna með ber að fara og búa til úr þeim frábærar afurðir.

Menning
Fréttamynd

Lífrænn og góður safi

Ávaxta- og grænmetissafi úr lífrænt ræktuðum gulrótum og nýuppteknum lífrænt ræktuðum eplum er nýkominn á markað. Innflytjandi þessara safa er Yggdrasill ehf. en athygli vekur að innihaldslýsing og næringarefnataflan á flöskunum er öll á íslensku

Menning
Fréttamynd

Runnar svigna undan rauðum berjum

Eitt af því sem fylgir hinum rómantíska ágústmánuði er uppskera á ýmsum gjöfum móður jarðar. Nú svigna greinar runna í görðum undan rauðum og bleikum berjum og lautir og hlíðar skarta lyngi með bláum og svörtum.

Menning
Fréttamynd

Lazy Daisy plattinn leynivopn

"Lazy Daisy-plattinn minn er tvímælalaust mitt leynivopn í eldhúsinu en þetta er svona kringlóttur viðarplatti á snúningshjóli," segir Hrefna Hallgrímsdóttir leikkona. "Ég er ógeðslega léleg í eldhúsinu en alveg mögnuð í uppvaskinu, það er mín sérgrein. Plattann nota ég mikið og hann auðveldar heilmikið þegar kemur að uppvaskinu.

Menning
Fréttamynd

Eldhúshnífarnir þrír

Hnífar eru bráðnauðsynlegir í eldhúsið og það getur verið vandasamt að finna gæðahnífa á viðráðanlegu verði. Sem betur fer er nú komið í ljós að það þarf aðeins þrjár gerðir hnífa til að framkvæma allar helstu eldhúsaðgerðir.

Menning
Fréttamynd

Berin eru sprottin

Í kjölfar góðviðrisins sem hefur tröllriðið landinu þetta sumarið má búast við magnaðri berjasprettu í móum sveita og einnig á runnum bæjarbúa. Þegar er farið að glitta í ber og sást til þroskaðra bláberja og krækiberja á Norðurlandi um verslunarmannahelgina.

Menning
Fréttamynd

Humar í sérstöku uppáhaldi

Elvu Ósk Ólafsdóttur leikkonu, finnst gaman að elda góðan mat og eru sjávarréttir í sérstöku uppáhaldi hjá henni. "Uppáhaldsmaturinn minn er að sjálfsögðu humar. Ég matreiði hann þannig að ég sker hann endilangan, fletti út og set á hann mikið af hvítlauks- og paprikusalti. Síðan snöggsteiki ég hann upp úr smjöri og helli síðan hvítvíni yfir hann og pínu rjóma.

Menning
Fréttamynd

Elskar japanskan mat

"Mér finnst alveg rosalega gaman að elda og það er eiginlega það skemmtilegasta sem ég geri," segir Melkorka Þuríður Huldudóttir, söngkona í hljómsveitinni Brúðarbandið.

Menning
Fréttamynd

Sælkeraverslun í Iðuhúsinu

Í nýja Iðuhúsinu í Lækjargötu hafa þær Kristín Ásgeirssdóttir og Guðbjörg Halldórsdóttir uppfyllt drauma sína og opnað sælkerabúðina Yndisauka.

Menning
Fréttamynd

Þriggja hæða herleg terta

Bræðurnir Gunnar Jökull og Kjartan Tindur Gunnarssynir eiga afmæli með fárra daga millibili. Yfirleitt er haldið upp á þau með einni stórri sameiginlegri veislu og þar sem þau eru að sumarlagi er stundum hægt að halda hana úti í garði.

Menning